Ég ætla bara rétt að
kíkja út mamma.
Ég lofa að koma snemma heim mamma.
Allir vinir mínir eru niðrá esso, ég verð að kíkja á þá
mamma
Ég nenni ekki að fara að djamma, búin að fá nóg af því að
drekka.
Kæmist líka ekki heim ef ég myndi drekka mamma
Ekki myndi ég keyra eftir að ég fengi mér að drekka
Ég kíki bara rétt niðrí bæ, það er svo stutt líka í bíladaga.
Umferðin er róleg, og fáir á ferli mamma
Þarna eru vinir mínir, allir að spjalla saman.
Ég heilsa uppá liðið og stoppa og spjalla mamma
Svo verð ég svangur og langar að fá mér eitthvað
Kveð þá í bili og fer þá og fæ mér að borða mamma
Svo kem ég tilbaka og bíð á rauði ljósi mamma
Græna ljósið kemur og legg ég af stað þá mamma
Horfi á vini mína og sé hvað ég er heppin að hafa þá
mamma
Ég tók ekki eftir bílnum sem fór yfir á rauðu ljósi
mamma
Hann keyrir beint á mig og hendir bílnum langt í burtu.
Ég vakna síðan og finn hvernig blóðið streymir.
Hvað var að ske, var allt í lagi með mig?
Ég finn hendur vina minna halda fast í hendi mína.
"Þetta verður í lagi, sjúkrabíllinn er að koma"
Ég sit fastur og bíð eftir að sjúkrabíllinn komi
mamma
Löggan kemur fyrst og ég heyri strákana segja
"Gaurinn er fullur og
liggur í götunni þarna"
Akkuru gerði hann þetta mamma?
Hugsaði hann ekki áður en hann fékk sér að drekka?
Ég finn blóðið ennþá úr höfði mér renna.
"Hvar er sjúkrabíllinn" kalla ég á vini mína
Þeir hlaupa til löggunar og segja þeim að hjálpa mér
Ég finn hvernig það verður erfiðara að anda.
Ég kalla á vini mína og bið þá að skrifa niður.
"Mamma ég elska þig, þú
ert sú allra besta"
"Pabbi ég elska þig, takk fyrir að vera alltaf góður"
"brósi þú ert sá besti, hafðu mig alltaf í hjarta þér.
Ég get ekki meira mamma,
blóðið er að verða búið.
Sjúkrabíllinn er kominn mamma, ég held að ég verði að kveðja
þig
Ég heyri lögguna segja "hann á mjög lítið eftir"
Ég tárast við að heyra þetta, og segji þeim að bjarga mér
Mamma akkuru ertu ekki hjá
mér.
Það eina sem ég vil er knús.
Ég lofa nú að vera sterkur.
Ég finn hvernig þeir byrja að klippa mig út.
Ég er ekkert hræddur mamma, vertu stolt af mér
mamma.
Ég segi þeim að fara varlega mamma,
Þeir mega ekki skemma bílinn þinn mamma.
Ég ætla að loka augunum núna mamma.
Sé þig eftir á eftir vona ég mamma.
Ég elska þig að eilífu segðu það sama til pabba.
Passaði að brósi keyri ekki eftir að hann fái sér að drekka.
Bæ elsku mamma
ég fæ tár í augun að lesa
þetta hérna kemur annar mjög svipað.. Ef þetta fær man ekki til að
hugsa þá veit ég ekki hvað..
Ég fór í partýið mamma,
ég mundi hvað þú sagðir,
ekki drekka og keyra,
Svo að ég fékk mér bara gos.
Ég var stolt mamma eins og þú sagðir að ég mundi verða,
ekki drekka og keyra,
þó að vinir mínir vilji það,
ég tók heilbrigða ákvörðun mamma og þínar ráðleggingar voru
réttar.
Þegar veislan var loks búin, settist ég í bílinn minn,
örugg um að komast heil heim.
En það sem gerðist mamma var það sem ég reiknaði síst með,
nú ligg ég hér í götunni mamma og heyri lögguna segja: strákurinn
í hinum bílnum var fullur undir stýri.
Mamma rödd hans er svo fjarlægð,
ég er öll út ötuð í blóði mamma,
en ég reyni að gráta ekki,
ég heyri sjúkraliðana segja: stelpan á ekki mikið eftir.
Ég er viss um að strákurinn pældi ekkert í þessu á meðan hann var
undir áhrifum,
því hann valdi að drekka og keyra.
Mamma er ég að deyja?
Af hverju gerir fólk þetta mamma?
Vitandi að það getur eyðilagt líf.
Ég finn svo til mamma,
það er eins og að ég hafi verið stunginn með óteljandi hnífum.
Segðu systur minni að vera ekki hrædd mamma,
segðu pabba að vera hugrakkur,
og þegar ég fer til himna mamma viltu þá skrifa á legsteininn:
Stelpan hans pabba.
Bara ef hann hafði ekki keyrt fullur mamma,
þá væri ég enn á lífi.
Ég á erfitt með að draga andann mamma,
ég er svo hrædd, þetta er mín hinsta stund,
en ég er ekki tilbúin mamma.
Ef ég gæti bara haldið utan um þig elsku mamma mín.
Ef ég gæti haldið í hönd þína mamma á meðan ég dey.
Mamma mín ég elska þig.
Bless.